Bólgur, gigt og varanlegar lausnir 18. febrúar

14,900 kr.

Gigt og bólgur!

Verkjalausnir og orkubúst!

 

Ertu með gigt og bólguverki í liðum og vöðvum? Ertu oft þreytt (ur) og orkulaus? Eru verkir, stirðleiki og þreyta að stoppa þig að lifa til fulls og gera það sem þig langar til að gera? Þá er þetta námskeið einmitt fyrir þig!

Námskeiðið verður haldið þriðjudaginn 18. febrúar kl 17.30 – 20.30 í Heilsumiðstöð Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 31.

Aðhald og stuðningur í lokuðum hóp á fb í tvær vikur.

 

Ummæli frá námskeiðinu:

Ollllaaa! komin ein vika þar sem öllu hvíta stöffinu hefur verið sleppt! Líður muuuun betur, orkan öll önnur, fasta 16:8, keypti allt sem mælt var með og vitið þið hvað, það er horfin bólgukúla sem kom út úr lið á úlnlið og doðatilfinningin út í þumalputta fer minnkandi! Áfram með snörið, þetta er að svínvirka fyrir mig! Takk svo mikið Þorbjörg. 

 

Gigt getur verið margs konar og oft notum við þessa greiningu breitt um þreytu, verki og stirðleika  í hnjám, mjöðmum, fingrum og tám og í herðum og baki, já í öllum kroppnum!

Ástæður fyrir gigt og bólgum eru af margvíslegum toga. Á þessu námskeiði verður farið í nokkrar þeirra með nálgun, skýringar og lausnir út frá hagnýtri læknis- og næringarfræði. Líkamskerfin öll eru tengd og ekki aðskilin og óháð hvort öðru. Til dæmis gegnir meltingin afar mikilvægu hlutverki fyrir líkamlega og andlega heilsu og hefur áhrif á m.a. taugakerfi, ónæmiskerfið, stoðkerfi og hormónakerfið ( breytingaskeiðið).

Bólgustemmandi lágkolvetna mataræði hefur afgerandi þýðingu fyrir heilbrigða og virka meltingu og er mikilvægur partur af hagnýtri heildar meðferð á bólgum í stoðkerfinu. Ef þú hefur ekki enn prófað það, þá er það kannski eitthvað sem þú vilt skoða og prófa í nokkrar vikur. Þú finnur það best!

Þetta verður m.a. annað tekið fyrir:

  • Gigt og verkir í liðum, liðamótum og vöðvum.
  • Melting og mikrobiota (þarmaflóran).
  • Bólgumyndandi sýkingar í meltingarvegi.
  • Lifrin og bólgan.
  • 5 R prógrammið fyrir meltingu og bólgur.
  • Breytingaskeiðið og estrogen skortur og áhrif á stoðkerfið.
  • Fæðuóþol og ofnæmi og bólgur.
  • Bólgumyndandi mataræði.
  • Bólgustemmandi mataræði.
  • Bætum meltinguna og minnkum bólgur og verki!
  • Úrræði og lausnir fyrir bólgur, stirðleika og þreytu.

Þetta er innifalið:

  • Kennsla, life í Reykjavík.
  • Tvær vikur í lokuðum hóp á fb með stuðning, aðhaldi og hvatningu.
  • Kennslu gögn.
  • Matar- og hráefnislisti.
  • Bólgustemmandi matarplan fyrir vikuna.
  • Listi yfir gangleg bætiefni fyrir liði, verki og þreytu.

Þetta er útkoman:

  • Minni bólga, verkir og stirðleiki í liðum, festum og vöðvum.
  • Meiri orka og vellíðan.
  • Betri og reglulegri melting.
  • Betri svefn.
  • Stjórn á mataræði og hvað þú átt að borða.
  • Aukin þekking á, hvernig líkaminn þinn virkar, sem gefur þér mikilvæg verkfæri til að bregðast við bólgu vandamálum.
  • Meiri gleði og umframorka til að vera besta útgáfan af sjálfri þér.

Þegar þú hefur skráð þig og greitt námskeiðið er þitt pláss tryggt.

Þú færð póst með nánari upplýsingum og aðgang að hópnum fyrir námskeiðsbyrjun.

Ath! Takmörkuð pláss.

Ég mæli eindregið með, að þú eigir Ketóflex bókina og takir hana með þér á námskeiðið. Þar eru svo margar gagnlegar og hagnýtar upplýsingar og frábærar og einfaldar bólgustemmandi uppskriftir. Þú getur pantað hana HÉR

 

 

Facebook
Twitter

Þú gætir líka haft áhuga fyrir öðrum námskeiðum

Scroll to Top