Þorbjörg Hafsteins, takk fyrir viðskiptin. Sjósund og heitur pottur.

UM ÞORBJÖRGU

Fyrirtækið, sem þú átt í viðskiptum við á þessari síðu er í eigu og rekstri Þorbjargar Hafsteinsdóttur og er skráð þannig:

Þorbjörg Hafsteins
kt. 200859-4809
Danmörk
email: thorbjorg@thorbjorg.dk
sími: 698 3048

Þorbjörg  er frumkvöðull, heilsu- og næringarþerapisti, lífsstílsþjálfi, jógakennari, rithöfundur og móðir.

Þorbjörg Hafsteinsdóttir er stofnandi The Health Revolution í Danmörku og framkvæmdarstjóri vörumerkisins Thorbjörg. Hún skrifaði sínu fyrstu bók 10 árum yngri á 10 vikum 2008, sem er metsölubók og hefur selst eins og heit (heilsu) lumma á Íslandi, í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi og seinna í USA og Letlandi. Bókin hefur valdið vitundarvakningu og umræðum um heilbrigði, næringu og heilsu um heim allan.  

Þorbjörg er með yfir 30 ára reynslu í næringar- og heilsu meðferðum en hún er einnig hjúkrunarfræðingur og löggiltur lífsstíls- og næringarþjálfi og enn fremur getur hún bætt við yoga kennaranámi í safnið. Hún er sérfræðingur í lífsstílsbreytingum er varða sykurfíkn, offitu, sykursýki, sjúkdóma kvenna, heilbrigða meðgöngu, heilbrigð börn og heilbrigða öldrun. Þorbjörg hefur umbreytt konum og körlum með 10 árum yngri prógramminu sínu og heldur byltingarkennd námskeið þekkt sem Ljómandi heilsa þar sem þáttakendur fá kennslu og leiðbeiningar um hvað þau geta gert til að léttast ef þess þarf með,  öðlast meiri orku, skýrleika og jafnvægi í lífinu. 

Þorbjörg er brautryðjandi í og sérhæfði sig bólgustemmandi fæði (anti inflammatory) og kennslu í mataræði og lífsstíl sem dregur úr of hraðri öldrun og fyrirbyggir sjúkdóma og kvilla sem tengist bólgum. Eðlilega er framhaldið lágkolvetna fæði og ketó fæði ásamt stuðnings heilsuiðkun eins og föstur, köld böð, yoga og hreyfing í útiveru. Þorbjörg er með mjög vinsæl námskeið í ketó fæði og lífsstíl sem er byggt á hennar eigin útgáfu sem hún kallar Ketó Flex 3-3-1. Ketoflex er einnig til í danskri þýðingu Þorbjargar og kom út hjá Politikens Forlag 2021. 

Þorbjörg hefur verið vinsæll fyrirlesari og kennari í meira en 25 ár. Hún hefur haldið fyrirlestra hjá stórum sem smáum fyrirtækjum, svo sem hjá íslenskum stjórnvöldum og bæjarstjórninni í Kaupmannahöfn. Hún hefur líka stjórnað eigin sjónvarpsþætti og kemur oft fyrir í fjölmiðlum sem heilsufulltrúi svo sem í lífsstíls- og heilsublöðum, og bloggum hjá stórum og áhrifaríkum, amerískum heilsusíðum eins og MindBodyGreen sem og sjónvarpsþættinum Go’Morgen Danmark á dönsku stöðinni TV2. Hún var einn af leiðandi þjálfurunum í danska þættinum Botox eða Brokkólí á DR1 þar sem hún leiðbeindi þremur konum og þremur mönnum í að verða 10 árum yngri og að líta miklu yngri út með því að fylgja ráðum hennar og leiðbeiningum um yngra og meira útgeislandi útlit. Ennfremur var hún einn af sérfræðingunum í meðferðarteymi í enskum sjónvarpsþáttum 100 Years Younger in 21 Days í 2018.

 

„Lífsgleði mín endurspeglast í því fólki sem leitar sér aðstoðar hjá mér og fær bata, betri líðan og jafnvel nýtt líf. Ég hef fundið leiðir sem hjálpa mér að vera meira lifandi, geislandi, sterkari og í minni kjörþyngd og mig langar að deila því með þér! Draumur minn er að allir geti notið þess sem ég hef náð. Þú getur það – og ástríða mín mun hjálpar þér að ná markmiðum þínum” – Þorbjörg 

Þorbjörg hefur líka skrifað fimm metsölubækur. Matreiðslubókina 10 árum yngri á 10 vikum, Matur sem yngir og eflir, Safaríkt líf- ljúffengir heilsudrykkir, Leiðir til Lífsorku og Ljómandi falleg húð á 28. dögum. 

Eina bókin sem ekki er enn þýdd á íslensku er bók Þorbjargar Min Yoga-næring til krop og sjæl (jóganæringin mín fyrir líkama og sál). 

Scroll to Top