„Þorbjörg ber þess sannarlega merki að lifa samkvæmt því sem hún predikar. Nú þegar hún stendur á sextugu stundar hún fjölbreytta hreyfingu, skorar reglulega á sjálfa sig í leit að hinu fullkomna jafnvægi og lítur svo sannarlega út fyrir að vera 10 árum yngri ef vísa má í titil fyrstu bókar hennar. Bókarinnar sem seldist í tugþúsundum eintaka í útgáfulandinu Danmörku og hefur verið gefin út hér á landi og hinum Norðurlöndunum. Bókina sem hún enn byggir námskeið sín og fyrirlestra á: 10 árum yngri á 10 vikum.
Þessi atorkumikla kona hafði fyrir löngu getið sér gott orð í Danmörku þegar við Íslendingar fengum fyrst að njóta góðs af fróðleik hennar. Hún býr í dag í báðum löndum og hefur gert frá 19 ára aldri en ræturnar liggja vestur og þakkar hún innbyggðum krafti Vestfirðinga hvert hún hefur náð í dag.“
Þetta er upphaf greinar í Fréttablaðinu frá 11.01.2020. Lestu áfram með því að smella á hlekkinn.
https://www.frettabladid.is/frettir/leyfdu-ser-ad-vera-threytt-og-sorgmaedd/