Insúlínnæmi, hvað er það nú? Þú ert kannski ekki, eðlilega, að pæla mikið í því, en það er góð hugmynd að kynna sér málið því að insúlínnæmi er eitt af því mikilvægasta fyrir eðlilega starfsemi líkamans og fyrir heilsuna þína.
Þegar við erum insúlínónæm er næstum því ómögulegt að létta sig, því fitubrennslan virkar ekki!
Bökkum aðeins og byrjum á byrjuninni og skoðum dæmi á hefðbundnu venjulegu hversdags mataræði sem flestir þekkja.
- Morgunverður; glas af appelsínusafa, fituskert jógúrt með ávöxtum og morgunkorni eða ristað brauð með osti og sultu.
- Formiddags kaffitími; hressing á kexi eða smákökum eða meira brauð með osti. Latte.
- Hádegismatur; pastasalat, samloka eða súpa með brauði.
- Síðdegiskaffið; með köku, kleinu eða súkkulaði eða bara ávöxtur eða ávaxta búst.
- Kvöldmatur; meðlæti; kartöflur eða hrísgrjón, pasta réttur, hamborgari, pizza, súpa og brauð eða skyr og brauð og álegg.
- Kvöldkaffi; með kexköku, brauði, nammi eða ís.
Allir málsverðir eiga það sameiginlegt að innihalda eitthvað af kolvetnum í x miklu magni; ávextir, ávaxtasafar, brauð, brauðmeti, grjón, pasta, rótargrænmeti, kökur, nasl, nammi og gos.
Gjörunnin matvæli innihalda sykur, viðbættan sykur og óhollar bólgumyndandi jurta- og fræolíur þar á meðal er sólblómaolía, soyaolía og majs olía.
Það er oft verið að borða 4.-6 máltíðir á dag sem inniheldur viðbættan sykur og sterkju.
Of mikið af því góða!
Byggt á reynslu eru margir að borða einmitt oftar en þrisvar á dag og nartandi á milli mála. Ástæðan getur hreinlega verið að maður er alltaf svangur. Það getur líka verið sykur- eða og brauð fíkn í gangi, eða manni leiðist og „nartið“ sefar á einhvern hátt.
Líkaminn bregst við kolvetnum, fitu og prótínum á mismunandi hátt.
Þegar við borðum nægilegt magn af prótíni, t.d. kjöt, fisk og egg, stækka t.d. vöðvarnir af því að prótín eru byggingarefni.
Þegar við borðum of mikið af sykri og kolvetnum stækka fitufrumur og fjölga sér.
Fitu notar líkaminn sem orku og til m.a. að búa til hormóna og sem næring fyrir heilan. Ef við borðum of mikla fitu fer hún í fitufrumurnar og geymist þar. Ef við borðum óhollar fitur (jurta-og fræ olíur og unnar olíur og fitur) eykst bólgumyndun í líkamanum.
Kolvetni, melting og nýting
Sykur og kolvetni meltast í glúkósa (blóðsykur) sem líkaminn nýtir sem orku. Í hvert einasta skipti sem við borðum sykur eða kolvetni, hvaða kolvetni sem er, mun insúlínið bregðast við, en misjafnlega hratt. Hreinn sykur og einföld kolvetni sogast hratt í blóðið, t.d. appelsínudjús eða ávöxtur eða sykurbætt gos eða nammi. Ef kolvetnin eru „flókin“ þeas trefjarík t.d. kál, sellerí leggir og heilkorn, fara þau mun hægar í blóðið. Þeim mun einfaldari sem kovetnin eru því hraðar bregst insúlínið við og getur verið lengi í blóðinu eða í 3-4 klst eftir eina kolvetnisríka máltið. Það þýðir að insúlínið getur verið að „sullast“ allan daginn í blóðinu á mataræði líkt því lýst hér fyrir ofan.
Þetta er kallað hyperinsulinæmia sem er ástand þegar insúlín er krónískt hátt í blóði, miðað við venjuleg gildi. Það getur haft meira eða minna alvarlegar afleiðingar fyrir líkaman og heilsuna þar á meðal skert insúlínnæmi, insúlínónæmi, sykursýki gerð 2, ofþyngd og bólgur.
Insúlínónæmi
Insúlínónæmi er ástand þegar insúlínmóttakar eru orðnir ónæmir fyrir insúlíninu. Athugaðu, að það er ekki nauðsynlega allur líkaminn sem er með insúlínónæmi á sama tíma, heldur „bara“ partur af honum. Aðallega eru það vöðva- og fitufrumur sem eru með insúlínónæmi. Á sama tíma geta aðrar frumur haft ágætis næmi fyrir insúlíni.
Á hinn bógin er insúlínónæmi líka krónískt hátt blóðinsúlín (hyperinsulnæmia) sem er, eins og áður er sagt, afleiðing af of mikilli sykur- og kolvetnis neyslu oft á dag í x langan tíma. Móttakarnir á frumunum verða oförvaðar af insúlíni, við getum líkt þeim við „lás sem er skakkur og lykillinn (insúlínið) passar ekki lengur nógu vel í lásinn og erfitt að opna hurðina og hleypa blóðsykrinum inn“. Þegar frumurnar bregðast ekki við á eðlilegan hátt, hefur það afleiðingar á aukinni áhættu á m.a. PCOS (fjölblöðrueggjastokkaheilkenni), of háum blóðþrýstingi, sykursýki gerð 2, þyngdaraukningu og offitu, elliglöpum og sennilega á Alzheimers (oft kallað sykursýki gerð 3).
Insúlínónæmi eða insúlínnæmi
Klínískar prufur og próf
Ef þú þekkir HDL kólesterólið þitt og þríglýserið gildin og deilir þríglýserið tölunni með HDL tölunni og útkoman er minni en 0,5 þá ertu sennilega með gott isúlínnæmi (-viðnám) sem eru góðar fréttir.
Ef útkoman er hærri en 2,0 ertu sennilega með of mikið af insúlíni í blóði (hyperinsulinæmi) og ert insúlínónæm.
Dæmi. Mitt þríglýserið er 0,51 deilt með HDL sem er 2,8 = 0,182 eða rétt undir 0,2 þannig að ég er með öllum líkindum með gott insulínnæmi. Ég borða bólgu stemmandi mat og er á ketóflex mataræðinu og stunda reglulega líkamsrækt m.a. geng, lyfti þungu, syndi og stunda sjóböð og iðka jóga.
Þú getur spurgt heimilislækninn þinn að mæla föstu insúlín. Ef útkoman er 10 eða undir ertu insúlínnæm en ef hún er hærri en 15 ertu örugglega með insúlínónæmi. Flestir læknar mæla bara föstu blóðsykur í leyt að svörum við insúlínnæmi en það er alls ekki nóg. Þú getur verið með blóðsykur innan eðlilegra marka en samt haft of mikið af blóðinsúlíni (hyperinsulinæmia).
Einkenni eða vísbendingar um insúlínónæmi
- Yfirþyngd og hár blóðþrýstingur, bæði.
- Litlar vörtur / -húðnabbar á hálsi, aftan á hálsi og í axlarkrikanum.
- Dökkir blettir í húð á hálsi og aftan á hálsi.
- Sykursýki gerð 2
Undirliggjandi ástæður fyrir skertu insulínnæmi eða insúlínónæmi.
- Hyperinsulinæmi; krónískt hátt insúlín í blóði. Sykur, kolvetni, sterkja, fitufrumur og bólgur.
- Streita; streituhormónar, (adrenalín og kortisól), svefn, skert streitusjórnun, sambönd og samskipti, umhverfi m.m.
- Breytingarskeiðið eða lágt estrogen og testosterón hormón.
- Bólga; fæðuóþol, melting, mismunandi gerðir af gigt og margt annað.
- Linolic acid; omega 6 fjölómettaðar fitusýrur, þar á meðal repjuolía, soyaolía, þístilsfræolía, sólblómafræolía og óhollar omega 6 fitusýrur í kjöti frá dýrum alin á tilbúnu fóðri (mjöl, soya osfrv) og í eldisfiskum.
Ef þú getur svarað JÁ við tveimur eða fleirum spurningum þá gætir þú verið með skert insúlín viðnám.
- Þú ert með meira af fitu um þig miðja(n) en þú kærir þig um.
- Hár blóðþrýstingur.
- Hjarta- og æðasjúkdómur í fjölskyldunni.
- Hátt blóð þríglýseríð.
- Færð auðveldlega vökvasöfnun og bjúg.
- Húð vörtur á hálsi, hnakka eða í axlarkrika eða dökkir blettir í húðinni á sömu stöðum.
- Sykursýki gerð 2
- PCOS (konur), reisn vandamál (menn).
Þetta getur þú gert til að bæta og tryggja insúlínnæmi:
Borða og lifa samkvæmt ketóflex prógramminu.
Einkatímar í ráðgjöf hjá Þorbjörgu
Eða byrjaðu hér:
- Taktu út sykur og einföld kolvetni.
- Farðu á lágkolvetna ketóflex mataræði.
- Minnkaðu bólgumynandi omega-6 fræolíur
- Taktu inn bólgustemmandi omega -3 fiskiolíu
- Borða nóg af gæða prótínum.
- Tryggðu gæðasvefn.
- Finndu hvað það er, sem stressar þig og gerðu eitthvað í því.
- Róaðu þig með jóga, hugleiðslu og meðvitaðri öndun.
- Hreyfðu þig og stundaðu reglulega líkamsrækt í minnsta lagi 150 mín á viku
- Kynntu þér tímatakmarkað mataræði; 16:8 til dæmis, þar sem þú fastar í 16. klst og borðar 3 málsverði dreift á 8 klst.