Lífsorkan í hámarki 25. maí UPPSELT!
11,900 kr.
Topp orka, léttari á þér og hormónar í jafnvægi!
Núllstilltu þig í nokkra daga, bættu mataræðið og stilltu hormónana!
Það jafnast ekkert á við að nýta sumarið, jafnvel nokkra daga í fríinu sínu, og bæta heilsuna og létta sig pínulítið. Margar konur, sem eru á breytingarskeiðinu upplifa að breytingarnar á hormónunum hafi neikvæð líkamleg og andleg áhrif. Þær eru ekki almennilega í jafnvægi, orkan er í lágmarki, skapið stundum stirt og brothætt og margar eiga í vandræðum með að losna við þrjósku magafituna. Margar konur, sem fyrir löngu eru hættar á blæðingum og hitakófi, eu samt ennþá að glíma við alls konar, þar á meðal orkuleysi, skort á lífsorku og drive og þrjóska magafitu. Svona þarf þetta ekki að vera.
Það er hægt að finna hluta af skýringunni í tapinu á estrogeni og hverning líkaminn bregst við þegar þetta mikilvæga hormón vantar. Skiljanlega, því estrogen hefur áhrif á svo marga og fjölbreytta líkamlega, andlega og líffræðilega þætti og virkni í líkamanum. Þar á meðal er orka, minni og einbeiting, gleði, svefn, ónæmiskerfi, drive, kynlífs löngun, slímhúð, húð, bólgur, insulínnæmi og fitubrennsla. Að missa estrogenið sitt getur þess vegna haft áhrif á þetta allt.
Hvað er til ráða? Er hægt að fá eitthvað í staðinn fyrir estrogen? Svarið er bæði já og nei. Já! vegna þess, að með biohacking verkfærum er hægt að gera heilmikið sem framkallar næstum því sömu jákvæðu viðbrögð í líkamanum sem estrogen framkallar. Þú getur endurheimt orkuna, hormóna jafnvægi, virka fitubrennslu, góðan svefn, líkamnlegan og andlegan styrk og gleði. Aldur er engin hindrun og það er aldrei of seint og alltaf rétti tíminn til að gera það sem þarf til að fá það betra!
Hvað það er, færðu að vita á námskeiðinu með Þorbjörgu.
25. maí kl 17.30 – 20.00 í Heilsumiðstöð Reykjavík, Suðurlandsbraut 30
Þorbjörg tekur á:
- Hormónar og breytingarskeið
- Komdu jafnvægi á hormónabúskapinn og líktu eftir östrogen viðbrögðum með hormesis
- Biohacking og estrogen
- Testosteron og drive, líka fyrir konur
- Matur sem stillir hormónabúskapinn
- Markviss bætiefni fyrir hormóna og jafnvægi
- Insúlínnæmi og fitubrennsla
- Húðin á breytingarskeiðinu
- Spurningar og svör
Þegar þú ert skráð færðu póst með kennslugögnum áður en námskeið hefst.
Taktu með þér stílabók og penna fyrir nótur.
Hlakka til að sjá þig!
Þú gætir líka haft áhuga fyrir öðrum námskeiðum
-
Lífsorkan í hámarki 25. maí UPPSELT!
11,900 kr. -
FASTA Í ÞRJÁ DAGA ONLINE
14,800 kr. -
TÚRBÓ KETÓFLEX ONLINE
14,800 kr.